Sumarid er tíminn...
Rétt eftir sídasta blogg tókst mér ad detta á hausinn og brjóta á mér hendina og tar sem tad tók mig 5 ára ad pikka inn eina setningu nennti ég alls ekki ad blogga tá! En ég losnadi vid gifsid mánudi seinna og gat tessvegna leyst prófin á tölvu eins og til er ætlast.
Prófalesturinn tók tæplega tvo mánudi og skiladi sér í tveimur stödnum prófum og er ég virkilega ánægd med tad.
Yfir próflestrartímann var lítid gert annad en ad lesa. Söng ad vísu á tveimur tónleikum med Stöku, ornum mínum. Tad gekk rosalega vel og var virkilega gaman.
Eftir prófin fór ég med Alex nidur í hús mömmu hans, sem var á Spáni tannig ad vid höfdum tad alveg útaf fyrir okkur. Hún býr á Stevns sem er rétt hjá Køge og tar er rosalega flott umhverfi. Vid fórum í langa göngutúra, slöppudum af og eldudum okkur gódan mat og tad var alveg yndislegt! Hún á líka badkar tannig ad ég eyddi drjúgum tíma tar! Rétt ádur en vid fórum fórum vid til Hróarskeldu og týndum jardaber á stórum jardaberjaakri, tannig ad ég lá í badkarinu og bordadi jardaber og drakk freydivín(keypti tad sko í búdinni ekki á akrinum).
Èg fór sídan á Hróarskeldu tónlistarhátídina. Var tar frá midvikudegi til sunnudags og tad var alveg ædislega gaman. Hápunkturinn fannst mér vera Coldplay tónleikarnir sem voru seinast á sunnudeginum, teir voru alveg ædislegir! Tad versta ad mínu mati var HITINN, sem var óbærilegur og rykid sem sat í loftinu eins og tykk toka! Tad er ekki alveg fyrir mig ad hafa glampandi sólskin og 30 grádur Ì SKUGGANUM!
Á Hróarskeldu nældi ég mér í einhverja pest og er ekki enn laus vid hana. Er samt ad fara á 5 næturvaktina í röd í kvöld, gæti kannski verid tessvegna sem ég er ekki ad losna vid pestina. Hef heyrt ad madur eigi ad liggja í rúminu tegar madur er lasinn, en ég tarf ad borga leiguna tannig ad tad er ekki í bodi!
Sídan er lærdómur framundan fyrir sjúkra- og upptökupróf sem ég tarf ad fara í. Var svo rosalega lasin í janúar sídastlidnum ad ég var ekki upp á mitt besta og valdi ad taka upptökuprófid núna í sumar.
Daginn eftir próf er sídan stefnt á heimkomu! Alex kemur med mér og vid ætlum ad sýna honum Ísland. Hann hlakkar mikid til og ég enntá meira!!! Verdur ædislegt ad koma heim og hitta alla:)
Get bara ekki bedid!
Tölvan mín er í vidgerd tannig ad ég er í Alexar tölvu og tessvegna eru engin tonn eda ed ;)
Bid ad heilsa ykkur öllum, kossar og knús Fannsa Pannsa
Já halló góðan daginn...
Sit hérna úfin og nývöknuð eftir næturvakt. Fattaði allt í einu að ég verð að vinna nokkrar vaktir þar sem ég fæ náttúrulega ekki námslán í júlí. Er farin að hlakka mikið til að koma heim í enda ágúst, á bara eftir að panta! Alex vill endilega koma með og hitta famelíuna og sjá Ísland, þannig að öllum líkindum kemur hann með ef hann getur fengið frí úr vinnu.
Það var æðislega fínt á Spáni yfir páskana, lítið annað gert en að liggja og sóla sig, borðaborðaborða og hafa það huggulegt! Fórum einn dag til Benedorm, sem er rosalega flott borg, fattaði einhvernveginn ekki að taka nógaf myndum, en set þær sem ég hef tekið inn á facebook við tækifæri. Við fórum svo líka í stuttar ferðir svona þarna um næsta nágrenni, en lágum aðallega í leti:)
Húsið sem við vorum í var alveg hreint æðislegt, þannig að ef ykkur langar í afslöppunar sumarfrí mæli ég hiklaust með þessu! Þarna var allt til alls og við fórum bara 2svar út að borða allan tíman því það var svo flott eldhús þarna og grill og svona.
Eina sem ég keypti mér á Spáni voru 3 listaverk af götulistamanni, sem ég féll alveg fyrir (Sko listaverkunum ekki manninum híhí)! Það var svoldið skondið, því þau voru svoldið dýr en ég gat ekki slitið mig frá þeim. Svo fór Jónatan, vinur Alexar sem er hálfur Argentínumaður, að spjalla við listamanninn á spænsku og þá komust þeir að því að þeir voru frá sama bæ í Argentínu! Kvissbammbúmm 50% afsláttur!!! Heppin!
Ég er svo með valkvíða hvar ég á að hengja þau upp, en set mynd inn þegar sú ákvörðun verður tekin!
Núna bíð ég spennt efitr laugardeginum, þegar ég er búin að sofa eftir næturvakt ætlum ég og Alex að bruna út á Sjáland því við erum boðin í ekta Argentínska grillveislu. Þetta er víst alveg sérstakt og mikil upplifun, þannig að ég er farin að hlakka mikið til. Mér þykir svo gaman að síðan ég kynntist Alexi þá hef ég verið með í fjölskylduviðburðum, bæði hjá honum og svo núna hringdu mamma og pabbi jónatans og buðu okkur með í fjölskyldu grillveislu. Finnst þetta svo gaman því ég sakna svo mikið fjölskyldunnar heima og að koma saman og hafa það gaman.
Fórum í afmæli til mömmu Alexar fyrir páska. Hún býr í svakalega flottu húsi í bæ sem er líklega á stærð við Fellabæ. Við renndum í hlað og löbbuðum inn, Í ÓLÆST HÚS!!! Ég fékk alveg gæsahúð því allt þarna minnti mig svo á að vera heima! Fólk bara labbaði inn og út að hentisemi, nágrannarnir kíktu í heimsókn og fjölskyldan samankomin að spjalla og fíflast og borða góðan mat.
Finnst eitt svo fyndið! Alex langar svo að læra íslensku og ég er alltaf að kenna honum orð. Hann er samt ekki alveg að fatta að hann þarf að breyta lýsingarorðum eftir kyni. Við vorum að fara að hafa okkur til fyrir kvöldmat og þá sagði hann, næstum óaðfinnanlega: Ég er ógisslega svöng! Og horfði á mig þvílíkt stolltur!... Ég flissaði smá og sagði honum að hann þyrfti að segja SVANGUR fyrir sjálfan sig en ég væri svöng. Það fannst honum algjört svindl því það væri miklu léttara að segja svöng en svangur!
Svo finnst honum tuttugu vera asnlegasta töluheiti sem hann hefur nokkurntíma heyrt, finnst við vera að segja tyvetyve(tuttugutugttugu)... Og svo finnst honum svo töff að við segjum já en ekki ja (jeh) þannig að hann notar það í tíma og ótíma og svo jú, þegar það á við.. Voða duglegur;)
Jæja segi þetta gott að sinni, ætla að reyna að ná smá sól í dag!
Saknaðarkossar og knús,
Fanney
Rán á pósthúsinu!
Ég ætlaði bara að monta mig aðeins! Er nefnilega að fara til Spánar um páskana:D Fékk senda auglýsingu um þetta líka flotta sumarhús 40 mín fra Alicante sem kostar aðeins 45000 eina viku yfir páskana! Það eru miðað við gengið núna tæpar 2200 danskar kr. og ég og Alex ætlum að skella okkur! Fengum flugið á engan pening og þar sem ég tek mér ekkert sumarfrí í sumar ákvað ég að þetta væri tilvalið. Með í för verða besti vinur Alexar og kærastan hans og svo eru systir hans og kærastinn hennar líka að skoða það að koma. Er farin að hlakka rosalega til að fara:)
Ef þið viljið skoða og samgleðjast þá er síðan: http://www.zamaris.piczo.com
Er búin að skoða veðurútlit og það er reiknað með 20-25°C yfir daginn, bara vona að það rætist!
Svo er ég að fara í 2 daga kórferðalag til Stokkhólms um helgina og hlakka líka rosalega til þess:)
Það eru íslenskir kórar í Stokkhólmi, Lundi, Osló, London og Kaupmannahöfn sem koma saman og halda tónleika!
Þetta verður örugglega alveg meiriháttar:)
Jæja ætla að fara að gera e-ð:)
Kossar og knús, Fannsa:)
Að hafa eldhús....
Í fyrradag bakaði ég franska súkkulaðiköku með Karin og fór með í heimsókn, þar sem hún vakti mikla lukku! Núna er ég að sjóða kjúklingabaunir því ég ætla að búa til hummus. Hummus er svo kjúklingabaunamauk, sem er ÆÐI með hrökkbrauði, grófu brauði eða jafnvel sem "dressing". Það er líka alveg ótrúlega hollt þannig að það skemmir ekki fyrir.
Ég er búin að setja myndir af nýju íbúðinni inn á facebook fyrir áhugasama. Er mjög ánægð bara með hvernig hefur tekist til.
Ég er að bíða eftir pakka frá mömmu, er orðin þvílíkt spennt! Hef enga hugmynd um hvað hún er að senda þannig að ég er alveg að springa úr forvitni!
Svo var ég að fá hugmynd um að gera smá sniðugt í páskafríinu. Upplýsingar koma seinna;)
Ok ég hef eiginlega ekker sniðugt að segja þannig að ég blogga bráðum aftur:)
Kossar og knús frá Kaupmannahöfn,
Fannsa Pannsa
Ný íbúð, nýir tímar:)
Eftir seinustu bloggfærslu fóru hjólin að snúast hjá mér. Að kvöldi miðvikudagsins 18. febrúar sá ég að ég hafði fengið tilboð á skólagarðaíbúð. Þannig var mál með vexti að ég átti að fljúga til Íslands morguninn eftir og ekki koma aftur fyrr en mánudaginn 23.og það var seinasti svardagur um hvort ég myndi vilja taka íbúðina. Á fimmtudagsmorguninn reif ég mig á fætur fyrir allar aldir, hringdi í skrifstofuna um leið og hún opnaði og fékk nr. hjá húsverðinum, sem til allrar hamingju hafði opið þá, hann sagði að ég gæti bara komið og skoðað þarna sem ég stóð þannig að ég brunaði niður á skrifstofu, fékk lykil, fór og skoðaði og leist vel á! Þá var klukkan 10:40 og ég átti að vera mætt kl. 11:00 á flugvöllinn:) Þökk sé því að Alex á bíl þá var það nú ekki mikið mál og ég mætt á réttum tíma á flugvöllinn og alles.
Þriðjudeginum eftir fékk ég svar um að ég hefði fengið íbúðina og þá þurfti ég nú að segja upp herberginu sem ég var í. Í leigusamningnum stóð að ég hefði 1 mánaðar uppsagnafrest en leigusalinn sagði að ef við fyndum leigjanda fyrir þann 1. mars væri ég laus allra mála. 20 tímum síðar var ég búin að redda leigjanda sem henni leist mjög vel á þannig að þá fór ég bara að pakka niður!!!
Ég var svo heppin að geta fengið lyklana af íbúðinni föstudeginum fyrir 1. mars þannig að við vorum búin að flytja alla kassa og flest smálegt fyrir 1. mars! Það létti mikið fyrir þar sem þann 1. fluttum við 3 búslóðir og fórum í heljarinnar verslunarleiðangur í IKEA og vorum frekar búin á því í lok dagsins!
Ég er búin að vera að koma mér fyrir í rólegheitunum, á eftir að fara eina ferð í IKEA, sem verður farin núna seinnipartinn og svo vantar mig bara sjónvarp, sem er á innkaupadagsskránni þegar ég á fyrir því. Ég var svo að lakka seinustu umferðina yfir eldhúsborðið mitt sem ég bæsti (bæsaði?) sjálf og lakkaði, er þvílíkt stolt:D
Ég og Alex vígðum eldhúsið með því að elda þvílíkt flotta indverska máltíð úr nýju indversku matreiðslubókinni hans sem hann fékk frá mér í afmælisgjöf 1. mars, ásamt því að fá að flytja allt dótið mitt!!! Þvílíkt góð kærasta;)
Jæja, ætla að gera mig klára fyrir IKEA ferð. Skelli inn myndum af íbúðinni þegar ég er búin að raða því síðasta!
Knús og kossar frá Kaupmannahöfninni:)
Andvaka...
Tölvan mín vill ekki alveg hlýda mér og skipta yfir á íslenskt lyklabord, tannig afd tid verdid bara ad afsaka tad!
Af mér er allt ágætt ad frétta. Hef ekki skrifad lengi lengi vegna veikinda, prófaanna og vinnuanna. Alltaf gaman ad afsaka sig hehe:)
En núna er ég allaveganna ad byrja á 5. önn í læknisfrædi. Vidfangsefnin tessa önnina eru nyru og tvagkerfi, kynfæri, blód, innkirtlafrædi og byrjun á lyfjafrædi svo tad helsta sé nefnt. Vid erum líka búin ad velja okkur vidfangsefnifyrir bachelorritgerdina okkar sem á ad skila í lok 6. annar. Ég ætla ad skrifa um HPV sýkingar og leghálskrabbamein, held tad verdi rosagaman!
Kórinn minn var med tónleika í gær. Teir voru haldnir í sendirádherrabústadnum fyrir fullu húsi. Tetta voru æfingartónleikar fyrir Íslandsferd sem verdur farin dagana 19.-23. febrúar. Vid syngjum á Háskólatorgi í hádeginu á föstudaginn sem einskonar kynningatónleikar. Svo syngjum vid á Kjarvalsstödum kl. 20 um kvöldid. Eftir tad er hittingur á Hressingarskálnum tar sem vinir og vandamenn eru meira en velkomnir.
Á laugardeginum er stefnan ad dúlla mér e-d med mömmu. Hún fær leyfi frá hælinu og vid gistum hjá Adalbjörgu, ég er farin ad hlakka mega til!!!
Á sunnudeginum syngjum vid sídan í Reykholti, kl. 16.
Sídan erum vid í kórnum ad fara til Stokkhólms í enda mars, tannig ad tad er bara allt ad gerast hjá okkur!
Andri og Steinunn komu og voru hjá mér frá 27. janúar, teim mikla merkisdegi, í eina viku. Tau fengu sídan samastad tangad til tau fá íbúdina sem tau verda med. Vid erum búin ad bralla ýmislegt saman, rosa fínt ad vera búin ad fá tau hingad út!
Ég er svo ad líta adeins í kringum mig med íbúdir. Mér finnst einhvernveginn eins og ég eigi ekki alveg heima tarna hjá tessari konu sem ég bý hjá, tetta er meira eins og ad vera í heimsókn hjá einhverjum sem madur tekkir ekki! Herbergin mín eru mjög fín og allt tad, en eldhúsadsstadan er ekkert til ad hrópa húrra fyrir, hefur líklegta ekki verid trifid í tessu eldhúsi í 25 ár eda svo... Og svo er bara margt sem ég er ekkert rosalega ánægd med... En ég er ad vonast til ad fá inn á skólagördum, tad stendur ad bidtíminn fyrir mig sé ca. 0-3 mánudir fyrir mig núna, tannig ad tad er bara ad vona ad tad fari e-d ad losna!
Ég held ad ég ætti ad reyna ad halla mér smá, tetta er bara smá update á mínu lífi.
Reyni ad vera duglegri ad skrifa og láta vita af mér.
Knús fra Kóngsins,
Fanney
JÓLAFRÍ!!!
Ég er komin í jólafrí!!! Þvílík gleði:) Síðustu vikurnar eru búnar að vera brjálaðar í skólanum og núna stefni ég á rúmlega 2 vikna MEGALETI:)
Er farin að hlakka endalaust til að koma heim. Flýg á mánudagskvöldið og Pétur frændi minn ætlar að sækja mig á flugvöllinn og skutla mér á Lauganesveginn þar sem ég fæ að halla mér til hálf 7 um morguninn þegar ég bruna útá völl að fljúga heim á fallegasta Héraðið! Kem mátulega í skötuna:)
Er búin að vera að fylgjast með jólaundirbúningnum heima í gegnum netið og símann! Það er búið að þrifa herbergið mitt, setja hreint á rúmið, baka uppáhaldskökurnar mínar! LÚKSUS:)
Heyriði, verð nú að segja ykkur mega skemmtilega sögu! Það var hringt í mig í gær frá símafyrirtækinu mínu og ég spurð hvort ég væri ánægð með þjónustu fyrirtækisins. Ég játti því, frekar undrandi á að það væri hringt í mig til að spyrja mig að því! Þá sagði hann að þeir væru að fara yfir kúnna hjá sér og sjá hverjir væru góðir kúnanr sem hefðu verið hjá þeim í einhvern tíma og staðið við skil af sínu og svona. Ég svaraði hálf undrandi, já ok... og hann hló smá afmér af því að ég var eitthvað svo voða hissa á þessu símtali. Þá tilkynnti hann mér að þar sem ég væri góður kúnni þá vildu þeir endilega gefa mér síma í jólagjöf með því skilyrði að ég yrði kúnni næstu 6 mánuðina. Sony Ericsson C905 með 8.1 megapixla myndavél, gps og svona græjum... OG ÉG ÞARF EKKI AÐ BORGA KRÓNU!!!
Hér er linkur á þennan flotta síma
http://www.sonyericsson.com/cws/products/mobilephones/overview/c905?lc=da&cc=dk 
Þessi elska er semsagt á leiðinni í pósti, borgar sig greinilega að vera góður kúnni:D
Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, hlakka til að sjá ykkur öll!
Jólaknús til þeirra sem ég á ekki eftir að sjá!
Bestu kveðjur frá Kaupmannahöfn, Fanney
Hallóhalló:)
Eftir Parísarferðina góðu lá ég í rúminu í nokkra daga með hita og skemmtilegheit, þurfti þó að mæta í skólann nokkra daga veik til að mæta í skyldumætingartíma og skrifa nokkrar skýrslur. 4. önnin er skýrsluönnin mikla... Erum í sífelldum tilraunum og þurfum síðan að skila löngum og ýtarlegum skýrslum um allt sem þeim tengist. Eins gott að það verði mikið úr þeim á prófinu því maður getur ekkert lesið svo mikið í bókunum á meðan maður er í endalausum skýrsluskrifum.
Jæja nú að aðaltilkynningu dagsins! Ég fjárfesti í lífi mínu! Það hefur verið á dagskrá að kaupa hjólahjálm síðan ég kom út og í dag lét ég loksins verða að því! Og styrkti í leiðinni gott málefni, nefnilega blóðgjöf! Ætlaði nú að gefa blóð í leiðinni en það var of stutt síðan ég gaf seinast þannig að ég verð að bara að fara næst:) Blóðbankinn kemur nefnilega upp í skóla til okkar einu sinni í mánuði eða svo og núna voru þau að selja hjólahjálma á sportprís. Fékk hann fyrir 200 dkr en hann kosta 400 allsstaðar...
Ætlaði að reyna að setja mynd en ég er lúði og man ekki hvernig ég á að gera það þannig að hérna er linkur fyrir áhugasama:
http://givblod.dk/index.php?page=shop.product_details&flypage=shop.flypage&product_id=65&category_id=6&manufacturer_id=0&option=com_virtuemart&Itemid=37
Núna er ég klárlega orðin svöl hjólreiðakona:D
Æji ég ætlaði að segja e-ð geggjað merkilegt en ég man ekkert hvað það var...
Ætli ég haldi ekki bara áfram að lesa respiratorisk fysiologi(öndunarfæra líffeðlisfræði)...
Megið endilega kommenta e-ð skemmtilegt:)
Jibbíjei, Fanney (rímar)
Hallöjsa:)
Ég var ekkert búin að blogga vegna anna þannig að núna verð ég að romsa uppúr mér því helsta sem ég man!
Daginn eftir að seinasta blogg var skrifað fór ég til Svíþjóðar að hitta vin minn. Hann var með mér í bekk í læknisfræðinni og við gerðum skýrslur saman og svona. Í byrjun hausts gerðist sá hræðilegi atburður að hann dattt á bryggju út í vatn og skall niður þannig að hann lamaðist fyrir neðan háls. Hann hefur þó fengið einhvern mátt í hendur en getur ekki hreyft fingur og mun ekki geta. Ég kveið fyrir því að fara að hitta hann, hélt ég myndi bara hágráta allan tímann. En það varð ekki þannig. Fyrr um daginn höfðu komið gestir á endurhæfingarstöðina sem voru að kynna íþróttir fyrir fatlaða. Þar hitti hann strák sem hafði sama skaða og hann sjálfur. Hann hafði lamast fyrir 3 árum síðan og núna tekur hann þátt í hjólastólarugby, býr í eigin íbúð, keyrir eigin hjólastól og bíl og þar fram eftir götunum. Þið getið ekki ímyndað ykur hversu æðislegt mér fannst að heyra þetta! Hafði einhvernveginn ekki getað ímyndað mér að hann gæti nokkuð án aðstoðar aftur! En hann var bjartsýnn, en þó raunsær á framtíðina og hafði náð að sætta sig ágætlega við það sem hefði gerst. þó að sjálfsögðu séu dagarnir misjafnir. Ég kom út af spítalanum þakklátari manneskja. Þakklát fyrir að vera heilbrigð, þákklát fyrir að fyrir tilstylli nýrrar tækni og frábærs fólks gæti vinur minni öðlast mun betri lífsgæði en ella og þakklát fyrir alla litlu hlutina sem mann þykja svo sjálfsagðir!
En að öðru!
Það er búið að vera nóg að gera í skólanum, held að þetta gangi svona þokkalega bara! Það hefur verið gestmargt að undanförnu. Hjördís Marta kom og stoppaði eina nótt og færði mér KRISTAL + og hlaut mikla ást fyrir! Einnig færði hún mér hangikjöt og flatbrauð sem ég svolgraði í mig namminamm!
Gunnar Gunnarsson, Raggi og Andri Mar komu í heimsókn til Kaupmannahafnar! Með þeim brallaði ég ýmislegt og Gunnar og Raggi færðu mér kúlusúkk... 2 poka!!!
Ég stakk því niður í ferðatösku og flaug með það til Parísar þar sem því voru gerð góð skil heima hjá Karin... Ég og Karin átum það næstum alllt samt, hinir smökkuðu bara haha:)
Karin er semsagt besta vinkona mín hérna úti, fyrir ykkur sem ekki vita. Pabbi hennar er franskur og mamma hennar sænsk en hún er fædd og uppalin í París. Við fórum semsagt heim til hennar og vorum frá mánudagskvöldi til sunnudagsmorguns. Við vorum 2 heila daga inni í París að skoða - Er búin að leggja hluta af myndunum út á facebook, fyrir áhugasama:) 1 dag fórum við og skoðuðum Versali og garðinn þar um kring, jeddúdamía hvað það er bara geeeeðveikt flott!! Þann daginn fórum við líka í verslunarmiðstöð og kauptum pínu... Það kvöldið fórum við síðan inn í París og hittum vini Karinar og síðan út á lífið. Hina dagana tókum við í afslöppun, veikindi og lærdóm!
Þetta var alveg frábær ferð og ég er eiginlega ekkert svo glöööð að koma tilbaka... Er búin að finna uppáhaldsstaðinn minn í París og orðin vön því að drekka rauðvín og borða osta á hverju kvöldi... Mmm maturinn þarna er náttúrulega bara góður... Kannski bara eins gott að ég kom til baka... yrði svona 500 kíló á að búa þarna!!!
En núna segi ég þetta gott, lofa að það verður ekki alveg jafn langt þangað til ég blogga næst;)!
Knús og kram, Fannsa
Hvað er betra...
Ég tók mig til og þvoði utanaf rúminu mínu í dag í tilefni þess að það var þurrkur úti! Við erum nefnilega með svona þvottsnúrur sem maður hengir á útum gluggann og dregur svo á hjóli og svo er þvotturinn manns hangandi á milli húsanna. Þetta minnir mig virkilega á Evrópska mynd, finnst þetta ÆÐI!!! Sérstaklega núna þegar ég ligg uppí rúmi í útilyktandi rúmfötunum, pínuponku köldum og rökum ennþá.. Mmmm! Þetta er toppurinn...
Ok ykkur finnst þetta kannski ekki jafn frábært og mér, en þetta er bara í fyrsta skipti í langan tíma sem ég ehf getað notið þessa, hef aldrei haft aðgang að útisnúrum í Kaupmannahpfn áður! Mér líður svoldið eins og á jólunum:D
Ég lét senda mér pening í dag svo ég væri viss um að ég væri búin að fá hann um mánaðarmótin svo ég geti nú staðið við skil á leigu og svona, þannig að þið sem eruð að hafa áhyggjur af mér þurfið ekkert að vera að því, þetta reddast allt saman! Svo á ég svooo frábærar vinkonur hérna að þær eru búnar að segja ef ég fæ ekki pening geti þær nú alveg lánað mér fyrir leigu og svona, allir að hjálpa litla Íslendingnum í kreppuvandræðum hehehe;)
Þetta er búið að vera e-ð svo frábær dagur að ég verð eiginlega að segja ykkur frá því.
- Ég fór í skólann og gekk ótrúlega vel að reikna gömul prófdæmi með lesfélögum mínum.
- Fór heim í hádeginu því að það var viðgerðarmaður að koma til að gera við netið mitt.
- Honum tókst það og ég hringdi og fékk endurgreitt þann tíma sem ég er ekki búin að vera með netið.
- Ég fór niður á íbúðarskrifstofu og hitti frábæra konu sem ætlar að redda öllu til að ég geti fengið trygginguna mína fyrir íbúðina sem fyrst.
- Fór á pósthúsið og sendi ísbjörn til Íslands.
- Hringdi í mömmu og hún reddaði bankaveseni á Íslandi fyrir mig.
- Fór heim og þvoði þvott, gerði hreint í herberginu mínu og á baðherberginu.
- Eldaði geggjaða súpu sem mamma gaf mér uppskriftina af og vinkona mín kom í mat og henni fannst ég meistarakokkur;)
- Við enduðum á því að sitja og spjalla allt kvöldið.
Ef allir dagar væru svona effektívir þá veit ég ekki hvar ég væri! Held ég hafi fengið e-a gleðisprautu í rassinn!
Úff ég ætla að reyna að tjúna mig niður í gleðinni og lesa smá kreppufréttir á mbl eða e-ð
nei djók
ætla bara að halda áfram að vera í maníukasti haha;)
Bið að heilsa:) Knúúús!
